Þáttur Opruh Winfrey þar sem hún tekur Harry Bretaprins og Meghan Markle, hertogaynju af Sussex, tali verður sýndur í Sjónvarpi Símans í kvöld kl. 20.00. Í þættinum ræðir Markle meðal annars um það hvar hún var hissa þegar hún hitti Elísabetu drottningu fyrst en Harry þurfti að kenna henni að hneigja sig fyrir henni. Hún segist vera fegin að hafa ekki vitað neitt um bresku konungsfjölskylduna áður en hún kynntist Harry.