Konum hefur fjölgað mikið í hópi skotveiðimanna á Íslandi síðustu ár og eru í dag um tíu prósent af þeim sem stunda skotveiði, segir formaður Skotveiðifélags Íslands. Hann kann ekki skýringu á þessu en tiltekur að þær konur sem koma á námskeið til að taka skotvopnaleyfi séu þverskurður af þjóðfélaginu, eins og karlar.