Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir að Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar sé eitthvað til að hafa áhyggjur af en það sé aftur á móti engin ástæða til að örvænta. Fyrstu tilfelli afbrigðisins sem hafa greinst í Norður-Ameríku, greindust í Kanada í gær.