Liðsmenn Búsáhaldabyltingarinnar ætla að halda áfram að mótmæla við Seðlabankann í fyrramálið. Talsmaður radda fólksins hvetur fólk til að fjölmenna á þingpalla síðdegis þegar seðlabankafrumvarpið verður á dagskrá. Hagfræðingur Seðlabankans fékk fylgd búsáhaldabyltingarinnar í hádegismat.