Á tímabilinu 2016 til 2019 voru ráðnir inn á Landspítala þrír til fjórir starfsmenn í skrifstofustörf á móti hverjum einum starfsmanni í hjúkrun og lækningar, eða klíníkina. Nýskipaður stjórnarformaður Landspítala segir að þær áskoranir sem spítalinn standi frammi fyrir séu þær sömu og sjúkrahús um allan heim glími við.