Áfengi minnkar líkur á hjartasjúkdómum

Allt er best í hófi
Allt er best í hófi mbl.is/Kristinn

Dagleg hófneysla áfengis virðist draga úr líkum á hjartasjúkdómum hjá körlum en minna þarf hjá konum svo áhrif drykkjunnar séu góð. Þetta kemur fram í skýrslu, sem birt var í breska læknatímaritinu í dag. Rannsóknin var gerð á 50.000 Dönum á aldrinum 50 til 65 ára hjá danskri miðstöð sem sérhæfir sig í áfengisrannsóknum.

Rannsóknin sýndi að karlmenn, sem drukku áfengi daglega, voru um 40% síður líklegir til að fá hjartasjúkdóma en þeir sem ekkert drukku eða drukku sjaldnar. Konur sem drekka áfengi fá einnig síður hjartasjúkdóma, en litlu máli virðist skipta hvort konurnar drekka daglega eða vikulega.

Drykkjuvenjur þeirra, sem tóku þátt í rannsókninni, voru mældar á sex ára tímabili. Þá voru þættir á borð við aldur, reykingar og matarvenjur teknir til hliðsjónar, 2,6% kvennanna og 5,1% karlanna fengu hjartasjúkdóma á meðan á rannsókninni stóð.

Judy O'Sullivan, talsmaður Bresku hjartastofnunarinnar, varar þó fólk við því að taka niðurstöðurnar of bókstaflega og segir að bindindisfólk ætti ekki að hefja drykkju til að minnka líkur á hjartsjúkdómum. Þá segir hún að þeir sem drekka verði að hafa það í huga að ókostir mikillar drykkju séu mun fleiri en kostirnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert