Á sama tíma og íbúar Flórída flýja fellibylinn Irmu hefur snjallsímaforritið, Zello walkie-talkie, slegið sölumet. Forritið gerir notendum þess kleift að eiga í samskiptum sín á milli þrátt fyrir að símasamband sé slæmt. Forritið var það mest sótta í þessari viku bæði hjá Google Play og í Apple App Store.
Fyrirtækið Zello í Austin í Texas þróaði snjallsímaforritið og kom því á markað árið 2011. Talið er að um 100 milljónir notenda noti forritið, að sögn fyrirtækisins. Forritið breytir snjallsíma í nútíma talstöð. Flestir notendurnir eru í Púertó Ríkó og í Flórída og sóttu það fyrr í þessari viku áður en fellibylurinn Irma nálgaðist.
Áður en fellibylurinn Harvey gekk á land í Mexíkóflóa í lok ágúst var forritið í 1400. sæti yfir mest sóttu snjallsímaforritin, að sögn Sensor Tower.