Umfangsmikil netárás hafði áhrif á mikilvæga innviði

AFP

Dreifð álagsárás var gerð á aðila innan fjármálageirans mánudaginn 9. nóvember, svokölluð DDos-árás. Um var að ræða stóra árás á íslenskan mælikvarða. Árásin hafði afleiðingar víðar, s.s. hjá fjarskiptafélögunum, vegna bilunar í erlendri varnarþjónustu sem alla jafna hefði dregið mjög úr stærð hennar.

Þetta kemur fram á vef Póst- og fjarskiptastofnunar.

Tókst að lágmarka skaðann

Þar segir, að árásin hafi haft víðtæk áhrif. „Hún hríslaðist um fjarskiptainnviði landsins og kom einnig niður á  greiðsluþjónustu og auðkennisþjónustu hér á landi. Með góðri samvinnu tókst þó að lágmarka skaðann eins og hægt var,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir, að CERT-IS vinni nú með fjarskiptafélögunum og fjármálageiranum að greiningu á árásinni og mótvægisaðgerðum til þess að minnka möguleg áhrif á lykilinnviði við slíkar aðstæður í framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert