Netárás gerð á Símann

AFP

Laugardagskvöldið 30. janúar urðu truflanir á sjónvarpsþjónustu Símans þegar fyrirvaralaus DDoS-netárás var gerð á netkerfi Símans.

Fram kemur í tilkynningu frá Símanum að engar truflanir hafi orðið á hefðbundinni fjarskiptaþjónustu en sjónvarpsþjónusta Símans varð fyrir truflunum í rúma eina og hálfa klukkustund. Sjálfvirk eftirlitskerfi brugðust við ásamt því að tæknifólk Símans og samstarfsaðila hófst handa við að minnka áhrif árásarinnar og að lokum stöðva áhrif hennar. Árásin sjálf hélt þó áfram en kerfi Símans héldu og tryggðu að hún myndi ekki valda frekari truflunum, að því er Síminn greinir frá.

mbl.is/Hari

Komust ekki inn fyrir varnir Símans

„Vegna þess hve árásin var dreifð tók nokkurn tíma að ná utan um hana og biður Síminn viðskiptavini sína afsökunar á þeim truflunum sem urðu á laugardagskvöldið.

Í framhaldinu mun Síminn efla sjálfvirk eftirlitskerfi sem bregðast við árásum sem þessum með enn skilvirkari hætti. Erfitt getur verið að kæfa fyrirvaralausar árásir sem þessar á stuttum tíma en Síminn mun yfirfara ytra netlag sitt og tryggja að sem flest kerfi séu varin og í öruggu skjóli eldveggja og sjálfvirkra eftirlitskerfa.

Árásaraðilar komust ekki inn fyrir varnir Símans og gátu með engu móti nálgast gögn Símans heldur var aðeins um að ræða dreifða netárás sem olli miklu tímabundnu álagi á kerfi Símans,“ segir í tilkynningu. 

Þá segir að árásin hafi verið tilkynnt til CERT-IS, netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert