Beint: 130 grunnskólanemar í Legókeppni

Háskólabíó.
Háskólabíó. mbl.is/sisi

Um 130 grunnskólanemendur á aldrinum 10-16 ára eru mættir í Háskólabíó til að taka þátt í tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League sem fer nú fram þar í fyrsta sinn í þrjú ár.

Allir eru velkomnir í bíóið til að fylgjast með keppninni og opið verður í Vísindasmiðjunni í Háskólabíói samhliða henni. Aðgangur er ókeypis, að því er segir í tilkynningu.

Markmiðið með Legókeppninni er að efla færni og lausnarmiðaða hugsun ásamt því að vekja áhuga ungs fólks á tækni og vísindum. Keppnin byggist á spennandi verkefnum sem örva nýsköpun, byggja upp sjálfstraust og efla samskiptahæfni.

Hægt verður að fylgjast í beinni útsendingu hér fyrir neðan frá vélmennakappleiknum til kl. 15.30:

Verkefnin eru ólík á milli ára en öll fela þau í sér áskoranir sem sóttar eru í heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Áskorun þessa árs kallast Ofurkraftar og snýst um orkunýtingu og auðlindir jarðar.

Keppninni er skipt í fjóra hluta. Meðal verkefna keppenda er að forrita vélmenni úr tölvustýrðu Legói til að leysa tiltekna þraut sem tengist áskorun þessa árs. Þá eiga keppendur að vinna nýsköpunarverkefni sem tengist orkumálum í þeirra eigin nærsamfélagi. Enn fremur þurfa keppnisliðin að gera grein fyrir því hvernig þau hanna og forrita vélmennið og loks er horft sérstaklega til liðsheildar.

Kynnir keppninnar er Katrín Lilja Sigurðardóttir, Sprengju-Kata, og lýsing á vélmennakappleiknum verður í höndum Jóns Arnar Guðbjartssonar.

Fimmtán lið taka þátt

Fimmtán lið grunnskólanema víðs vegar af landinu eru að þessu sinni skráð til leiks. Allt að tíu manns eru í hverju liði ásamt leiðbeinanda og hafa liðin unnið ötullega að undirbúningi síðan snemma hausts.

Það lið sem ber sigur úr býtum í keppninni á kost á að taka þátt í úrslitakeppni FIRST LEGO League Skandinavia sem haldin verður í Osló þann 3. desember nk. Auk verðlauna fyrir sigur í keppninni eru veitt verðlaun fyrir bestu lausn í hönnun og forritun á vélmenni, besta nýsköpunarverkefnið og bestu liðsheild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert