Lífslíkur íslenskra kvenna minnka

Meðalævilengd karla á Íslandi var 80,9 ár árið 2022 og …
Meðalævilengd karla á Íslandi var 80,9 ár árið 2022 og meðalævilengd kvenna 83,8 ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Meðalævilengd íslenskra kvenna styttist um 0,3 ár frá árinu 2021 á meðan hún stóð í stað hjá körlum á milli 2021 og 2022. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar.

Frá árinu 1988 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum en konur hafa bætt við sig rúmlega fjórum árum. Meðalævilengd kvenna er þó enn tæplega þremur árum meiri en hjá körlum eða 83,8 á móti 80,9.

Meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur lækkað á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um.

Á tímabilinu 2012 til 2021 var meðalævi Íslendinga 82,8 ár en einungis sex ríki Evrópu voru með lengri meðalævi á sama tímabili. Vermir San Marínó efsta sætið á þeim lista, þar sem meðalævin var 85,6 ár. Því næst kom Sviss með 83,4 ár, Spánn með 83,2 ár, Ítalía með 83,0 ár og Liechtenstein með 82,9 ár. Styst var meðalævilengd karla í Úkraínu, eða 72,6 ár.

Segja Noreg hafa komið best út úr faraldrinum

Þegar einungis er horft á 2019 til 2021, og tilraun gerð til þess að meta þau áhrif sem kórónuveirufaraldurinn hefur haft á dánartíðni, kemur í ljós að Búlgaría virðist hafa orðið verst úti vegna faraldursins af þeim Evrópuríkjum sem þegar hafa skilað inn gögnum, segir á vef Hagstofunnar. Í Búlgaríu styttist ævilengdin um 3,7 ár. Þar á eftir komu Albanía, Norður-Makedónía, Serbía og Slóvakía þar sem ævilengdin styttist um 3,6-3,2 ár.

Þá segir á vef Hagstofunnar að samkvæmt þessum mælikvarða virðist Noregur hafa farið best út úr faraldrinum, en þar jókst ævilengdin á milli áranna 2019 og 2021 um 0,2 ár. Næst á eftir Noregi kom Liechtenstein þar sem ævilengdin jókst um 0,1 ár. Þar á eftir komu Danmörk, Lúxemborg og Ísland en þar stóð ævilengdin í stað á milli áranna 2019 og 2021.

Dánartíðni hækkaði

Árið 2022 létust 2.693 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.365 karlar og 1.328 konur. Dánartíðni var 7,0 látnir á hverja 1.000 íbúa og hækkaði um 0,7 milli ára.

Ungbarnadauði á Íslandi árið 2021 mældist 1,4 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum. Þegar horft er á tímabilið 2012 til 2021 var ungbarnadauði á Íslandi að meðaltali 2,0 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn fátíður og hér, nema í smáríkjunum Andorra og San Marínó.

 

Ævilengd háskólamenntaðra jókst mest

Ef ævilengd er skoðuð út frá menntun kemur í ljós að ævilengd háskólamenntaðra jókst mest.

Árið 2022 var ólifuð meðalævi 30 ára kvenna með grunnskólamenntun 52,3 ár á meðan þrítugir grunnskólamenntaðir karlar máttu búast við því að lifa 48,9 ár til viðbótar.

Konur með framhaldsskólamenntun gátu vænst þess að lifa tæplega þremur árum lengur en stallsystur þeirra með grunnskólamenntun eða í 55,3 ár frá 30 ára aldri.

Munurinn var aðeins meiri á meðal karla þar sem ólifuð ævi 30 ára karla með framhaldsskólamenntun var að meðaltali 52,2 ár eða þremur árum lengri en karla með grunnskólamenntun.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert