Vinsælustu jólasmákökuuppskriftir Alberts

Albert fer á kostum í jólasmákökubakstri.
Albert fer á kostum í jólasmákökubakstri. Albert Eiríksson

„Það er einhver óútskýrð dásemdartilfinning sem fylgir smákökubakstri á aðventunni. Þessi dásamlegi ilmur sem berst um húsið í bland við barnslega jólatilhlökkun,“ segir Albert Eiríksson matgæðingur í nýrri færslu á blogginu sínu þar sem hann tekur saman 6 vinsælustu jólasmákökuuppskriftir sínar. 

Sú vinsælasta eru hinar svo kölluðu Bessastaðasmákökur Vigdísar Finnbogadóttur en hinar uppskriftirnar má sjá hér. 

Bessastaðakökur.

„Föðursystur mínar, aldar upp á prestssetrinu í Sauðlauksdal upp úr fyrri aldamótum (en þar bauð prestsmaddaman hún amma mín sóknardætrum oft að koma að læra hannyrðir og matargerð), bökuðu alltaf þessar kökur fyrir jólin og gáfu okkur í fjölskyldunni í fallegum kössum fyrir hátíð. Þær sendu meira að segja box til æskuvinkonu minnar í Ameríku, þegar hún dvaldi þar um jól. En Bessastaðakökur voru þær kallaðar af því að þær voru sagðar ættaðar frá Jakobínu Thomsen, konu Gríms Thomsens þegar hann bjó á Bessastöðum á síðari hluta 19. aldar. Svo það er skálda-keimur af þessum mögnuðu smákökum,“ hefur Albert eftir Vigdísi sem deildi með honum uppskriftinni að jólakökum fjölskyldunnar.

Bessastaðakökur eru staðfastar og sjarmerandi eins og Vigdís sjálf.
Bessastaðakökur eru staðfastar og sjarmerandi eins og Vigdís sjálf.

„Ég tók með mér þessa uppskrift þegar ég flutti til Bessastaða og þær voru alla mína tíð bakaðar þar – reyndar allan ársins hring – og bornar fram í silfurskál (eins og konfekt) með kaffi (og aðeins þær sem bakkelsi) öllum þeim sem komu í stutt viðtöl eða með einhver erindi, – það var alltaf öllum boðið kaffi að gömlum sveitasið.“

Bergþór Pálsson, eiginmaður Alberts, Vigdís Finnbogadóttir og Albert eldhúsmeistari.
Bergþór Pálsson, eiginmaður Alberts, Vigdís Finnbogadóttir og Albert eldhúsmeistari.

Bessastaðakökur

250 g hveiti

250 g smjör

125 g sykur

125 g flórsykur

grófur sykur

gróft malaðar möndlur (hnetur)

Smjörið brætt, látið storkna aftur og öll syrja skafin neðan af. Blandið hveiti og sykri saman, myljið smjöri saman við. Hnoðið vel. Fletjið út en ekki mjög þunnt. Mótið frekar litlar kringlóttar kökur. Penslið eggi á miðjuna og stráið á grófum sykri og möndlum. Bakið við 180° í 10-12 mín.

„Þótt ég sé talsmaður þess að minnka sykur í tertum og kökum gerði ég það ekki núna í þessari uppskrift en bætti við 1/2 tsk. af salti. Eggið, möndlurnar/hneturnar og sykurinn eiga að vera í lítilli fallegri hrúgu á miðjunni – stundum eru litlar hendur extra-viljugar að hjálpa til,“ segir Albert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert