Pítsa og ostastangir lata mannsins

Hver segir að hrökkbrauð geti ekki orðið nánast hvað sem …
Hver segir að hrökkbrauð geti ekki orðið nánast hvað sem er? mbl
Pítsur eru sívinsælar en hér er komin fljótleg og hollari leið til að búa til slíkt gúmmelaði en myndbönd sem sýna hvernig hrökkbrauð getur orðið að nánast hverju sem er fönguðu athygli okkar þegar internetið var skannað í svengdarkasti í gærkvöldi. Hvort sem það er pítsa, sushi eða ostastangir virðist hrökkbrauðið koma sterkt inn en stangirnar eru æði girnilegar. Hrökkbrauð geymist einnig vel svo það er gjarnan til í mörgum heimilisskápum. Nú er að hrökkva - eða stökkva og prufa eitthvað nýtt, fljótlegt og flippað.
 Það er einnig hægt að kaupa glútenslaust hrökkbrauð sem hentar mörgum betur.

Hrökk-pítsa fyrir 1

Burger Spelt hrökkbrauð

1 stór sveppur

4 sneiðar pepperóni

Pizzasósa
Rifinn ostur

Brúnið sveppina og pepperóni á pönnu (ekki nauðsynlegt).
Setjið pizzasósuna yfir Burger Spelt hrökkbrauð, raðið sveppum og pepperóni ofan á
 
og toppið með rifnum osti.
Bakið í ofni við 200°C þar til ostur er orðinn gullinbrún.



Sushi á hrökkbrauð er skemmtileg pæling.
Sushi á hrökkbrauð er skemmtileg pæling. mbl
Girnilegt!
Girnilegt! mbl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert