Dásamleg skyrkaka með hindberjum og hvítu súkkulaði

Thelma er meistari í tertugjörningum. Takið eftir hvernig hún toppar …
Thelma er meistari í tertugjörningum. Takið eftir hvernig hún toppar tertuna með rjómadúllum. mbl.is/MS

Hér kemur ein skotheld hátíðarbomba úr smiðju Thelmu Þorbergsdóttir sem bloggar á matarvef MS - gottímatinn.is.

Kakan er einstaklega bragðgóð en það sem betra er þá er hún svo sérdeilis falleg að maður hreinlega roðnar. Það er ekkert undan þessu að kvarta en það góða við skyrkökurnar er að maður bugast hreinlega ekki við að borða þær enda skyrið létt í maga. Sumir taka út sykurinn og láta rjómann og skyrið duga en það er smekksatriði. 

Dásamleg skyrkaka með hindberjum og hvítu súkkulaði

Botn:

  • 1 pakki kanilkex
  • 120 g smjör

Kakan:

  • 500 g vanilluskyr
  • ½ l rjómi
  • 3 msk. flórsykur
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 6 stk. matarlímsblöð
  • ½ dl mjólk
  • 200 g hindber, frosin eða fersk

Toppur:

  • ¼ l rjómi
  • fersk hindber

Aðferð:

Botn: Setjið kex í matvinnsluvél og hakkið þar til fínmalað. Bræðið smjör og blandið saman við og látið matvinnsluvélina vinna. Setjið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi um 20-22 cm að stærð. Setjið kexblönduna í formið og þrýstið vel niður í botninn, gott er að nota botninn á glasi til að þrýsta kexinu niður og upp á hliðar formsins. Geymið botninn í kæli á meðan þið undirbúið rest.

Skyrkaka: Setjið matarlímsblöð í skál með köldu vatni og látið liggja í bleyti í rúmar fimm mínútur. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði eða á lágum hita og látið kólna örlítið áður en þið blandið því saman við skyrið. Þeytið rjóma og hrærið saman við skyrið ásamt flórsykri. Blandið hvíta súkkulaðinu saman við og hrærið vel. Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið í pott ásamt mjólkinni. Hitið yfir lágum hita og hrærið þar til matarlímið er búið að leysast alveg upp. Hellið matarlímsblöndunni saman við skyrblönduna og hrærið vel. Setjið hindberin saman og hrærið létt. Hellið skyrblöndunni yfir botninn, setjið plastfilmu yfir kökuformið og kælið í 8 klst. eða yfir nótt. Þegar þið takið skyrkökuna úr forminu er gott að nota beittan hníf og skera meðfram köntum formsins áður en þið losið það utan af. Setjið kökuna á fallegan disk og skreytið.

Toppur: Þeytið rjóma og setjið yfir kökuna ásamt ferskum hindberjum. Hér er notast við sprautustút 1M til að mynda rósir úr rjómanum. Geymið í kæli þar til kakan er borin fram og sigtið þá mögulega smá flórsykur yfir ef þið viljið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert