Laxapasta sem sameinar tvo heima

Hver elskar ekki gott pasta?
Hver elskar ekki gott pasta? mbl.is/GoodToKnow

Nú þegar flestir eru með hugann við hollara mataræði er ekki úr vegi að skella í smá laxapasta að hætti meistaranna. Laxapasta eða laxalinguine sameinar í raun tvo heima: hollustu og lúxus. Við getum fært sannfærandi rök fyrir því að það sé afar snjallt að byrja janúar á einmitt svona mat þannig að líkaminn fái notalega aðlögun að hollustufæðinu eftir dásamlegt desembersukkið.

Laxalinguini meistaranna

  • 3 laxaflök
  • smjörklípa
  • 80 g dill
  • 50 g afhýddar möndlur
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 4 msk. ólífuolía
  • rifinn börkur af 1 sítrónu
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • 300 g linguine
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Kryddið laxinn og setjið í eldfast mót ásamt smjöri. Bakið í 12-15 mínútur við 180 gráðu hita (fer eftir þykkt flaksins). Takið út úr ofninum, fjarlægið roðið og rífið í sundur með gaffli.
  2. Blandið saman dilli, möndlum, hvítlauk og ólíufolíu í matvinnsluvél og maukið vel saman. Bætið sítrónuberki og safa við og kryddið.
  3. Sjóðið linguine samkvæmt leiðbeiningum, síið en geymið 2 msk. af soði. Setjið í skál og blandið maukinu ásamt soðinu saman við og hrærið. Setjið laxinn að síðustu saman við og blandið létt saman. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert