Kokteilinn sem er að gera allt vitlaust

Ferskur kokteill sem minnir helst á detox-safa sökum engifers og …
Ferskur kokteill sem minnir helst á detox-safa sökum engifers og agúrkukeims. Ljúffengur! mbl.is/aðsend

Frost er ákaflega ferskur kokteill sem notið hefur mikilla vinsælda á barnum Veður á Klapparstíg. Drykkurinn er ákaflega ferskur svo ef ekki væri betur að gáð gæti fólk haldið að þetta væri detox-drykkur! 

Frost
Fersk gúrka og engifer marið í hristara – magn eftir smekk 
40ml gin
20ml ylliblómalíkjör
30ml sítrónusafi
15ml piparsíróp

Hrist saman og hellt í glas með klaka.

Piparsíróp:
1 hluti vatn 1&1/2 hluti sykur, 1 góð klípa heil svört piparkorn.
Hitið vatn og sykur saman upp að suðu.
Merjið piparkornin létt og látið út í sjóðandi sírópið.
Takið blönduna samstundis af suðu og hrærið í 1 mín. Sigtið flest piparkornin úr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert