Verslunin Sætar syndir hefur opnað makkarónubar í verslun sinni í Hlíðarsmára 19 en þar er hægt að gæða sér á miklu úrvali hágæða makkaróna.
Einnig bjóða Sætar syndir nú upp á hælaskóakökur sem eru fylltar með makkarónum og konfekti. Ekki vitum við til þess að slíkar kökur hafi fyrr verið fáanlegar hér á landi en huggulegar eru þær og eiga ábyggilega eftir að slá í gegn.