Fimm veitingahús á Íslandi taka þátt

Hér gefur að líta fallega mynd frá Frakklandi í tilefni …
Hér gefur að líta fallega mynd frá Frakklandi í tilefni af frönsku matarhátíðinni sem fram fer í næstu viku.

Veislan Goût de France/Good France verður haldin í fjórða skipti miðvikudaginn 21. mars næstkomandi.

Þátttakan á heimsvísu hefur aldrei verið meiri: Vel yfir 3.000 matreiðslumenn bjóða 3.000 matseðla í fimm heimsálfum. Með þessari veislu er ætlunin að vekja athygli á franskri matgerðarlist og að bjóða fólki að neyta kvöldverðar að frönskum hætti.
Fimm veitingahús á Íslandi taka þátt í veislunni og bjóða matseðla undir hennar merkjum 21. mars og jafnvel lengur.

Þetta eru AALTO Bistro (Sveinn Kjartansson), Humarhúsið / The Lobsterhouse (Ívar Þórðarson), Kitchen & Wine (Hákon Már Örvarsson), Kopar (Ylfa Helgadóttir) og Le Bistro (Rémi Orange).

Öll veitingahús, sem taka þátt í veislunni, hvar sem er í heiminum, leggja sitt af mörkum til lifandi, skapandi og leitandi matgerðarlistar og halda jafnframt í heiðri gömlu gildin: Samneyti, gleði, virðingu fyrir matarnautninni og fyrir umhverfinu. Matstaðirnir spanna allan skalann, frá grillhúsum til stjörnustaða, og bjóða máltíðir úr ferskum afurðum, upprunnum af næstu grösum, þar sem hóflega er farið með fitu, sykur og salt, segir í tilkynningu frá franska sendiráðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert