Ofnbakaður lax með hrísgrjónum og mango jalapeno sósu

Lax á alltaf vel við.
Lax á alltaf vel við. mbl.is/

Einn tveir og elda hefur farið mikinn á máltíðamarkaðinum undanfarnar vikur og hafa viðtökurnar verið ákaflega góðar. Reyndar kemur það lítið á óvart þar sem það er afskaplega þægilegt að þurfa ekki að ákveða hvað á að vera í kvöldmatinn.

Hér gefur að líta einstaklega skemmtilega og bráðholla uppskrift að ofnbökuðum laxi sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

<strong>Ofnbakaður lax með hrísgrjónum og mango jalapeno sósu fyrir tvo</strong>
  • 360 gr lax (tveir bitar)                                       
  • 15 gr kryddblanda (paprika, pipar, salt, basil, oregano jafnt hlutafall af öllu)
  • 100 gr hrísgrjón
  • ½ stk brokkólí                              
  • 50 gr mango
  • 10 stk jalapeno sneiðar
  • 50 gr sykur
<span> </span> <span>Aðferð:</span>
  1. Hrísgrjónin eru sett í pott  ásamt 2 dl af vatni og kryddað með ½ tsk salti og soðið í ca 15 mínútur.
  2. Laxinn er kryddaðu og settur í eldfast mót öelítilli ólivuolíu hellt yfir og bakaður við 180¨c í ca 12 mínútur
  3. Mangóið og jalapenjóið er skorið í smá bita, Ólívu olía sett í pott og hituð jalapenjóinu og mangóinu hellt úti og látið krama í smá stund því næst er sykrinum helt úti ásamt 1 dl af vatni og soðið niður í ca 10 mínútur eða þar til orðið að sýróps þykkt .
  4. Vatn sett í pott ásamt ólivuolíu og salti þegar suðan kemur upp er grófskornu brokkolíinu skelt útí og soðið í ca 3 mínútur þá tekið upp úr og sigtað frá vatninu.
  5.  
  6. Nú á allt að vera orðið orðið klárt og sett fallega á diskinn og sósan sett í kring. Þessi réttur er einfaldur og alveg hrikalega ferskur og mikið vor í honum, skemtilegt tvist sem kemur frá mangóinu og jalapenjóinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert