Þær gleðifregnir berast frá veitingastaðnum Borðinu að vínveitingaleyfið langþráða sé loks í höfn en Reykjavíkurborg hefur ítrekað hafnað umsókn þeirra. Af því tilefni verður fagnað næstu daga með ýmsum hætti og brátt munu forsvarsmenn staðarins lengja opnunartíminn.
Borðið er staðsett inn í miðju íbúðarhverfi við Ægissíðuna í Vesturbænum. Staðurinn er einkum sóttur af fjölskyldufólki í hverfinu og nýtur mikilla vinsælda enda maturinn ljúffengur.
Hér gefur að líta Facebook-tilkynningu Borðsins: