Ofursvalt eldhús Gwen Stefani

Svarthvítur draumur sem vekur athygli.
Svarthvítur draumur sem vekur athygli. mbl.is/Elle Decor

Það var ekki hægt að búast við örðu en að eldhúsið hjá hinni einu sönnu Gwen Stefani væri algjörlega í hennar anda. Stefani er þekkt fyrir ögrandi og áberandi stíl. Sterkir litir og mynstur einkenna þennan stíl og fyrrverandi heimili hennar og Gavin Rossdale, fyrrverandi eiginmanns hennar, er gott dæmi um það. 

Fasteignin er til sölu en illa gengur að selja. Húsið var áður í eigu Jennifer Lopez og státar af öllu því sem prýða þarf góða stjörnueign, eins og líkamsræktarsal, tennisvelli, sex svefnherbergjum, sundlaug og bíósal. 

En eldhúsið er æði... og ekki er útieldhúsið síðra. 

Heimild: Elle Decor

Ekki amalegt að tylla sér hér á heitum sumardegi og …
Ekki amalegt að tylla sér hér á heitum sumardegi og sötra kalda kokteila. mbl.is/Elle Decor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert