Þetta æðislega eldhús fær hjartað til að slá aukaslag af aðdáun einni saman. Opið og fagurt, hvítt og stílhreint þar sem náttúrulegir tónar fá sín notið.
Það er bandaríski hönnuðurinn og ljósmyndarinn Kelly Klein sem á heiðurinn að eldhúsinu sem er á heimili hennar.
Einkar vel heppnað og má vel taka til eftirbreytni.