Pizzasnúðar með skinku og pepperoni

mbl.is/Eva Laufey

Það er fátt betra en að vera heima og baka og ilmurinn sem kemur af þessum dásamlegu pítsasnúðum er dásamlegur. Það er Eva Laufey sem á þessa uppskrift og það er ekki annað hægt en að freista þess að leika þetta eftir. 

Pizzasnúðar með skinku og pepperoni 

Þessi uppskrift er stór, ég skipti henni í tvennt bjó til snúða og skinkuhorn. Helmingur af þessari uppskrift gaf mér semsagt 20 meðalstóra pizzasnúða.

  • 900 g  hveiti
  • 40 g sykur
  • ½ tsk salt
  • 100 g smjör, brætt
  • 500 ml mjólk
  • 1 pakki þurrger (12 g)

Fylling :

  • 1 bréf skinka
  • 1 bréf pepperoni
  • pizzasósa, magn eftir smekk
  • rifinn mozzarella ostur, magn eftir
    smekk
  • oreganó krydd

Til að pensla yfir:

  • 1 egg
  • 2 msk mjólk
  • rifinn ostur
  • oreganó krydd

Aðferð:

  1. Hitið mjólk í potti, mjólkin á að vera volg.
  2. Vekjið gerið í mjólkinni, en það tekur um það bil fimm mínútur. Um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin.
  3. Bræðið smjör.
  4. Blandið öllu saman í skál og hnoðið deigið mjög vel, ég leyfi hnoðaranum á hrærivélinni minni að sjá um verkið en
  5. þá tekur það um bil bil fimm til sex mínútur.
  6. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að lyfta sér í rúmlega klukkustund eða þar til það hefur
  7. tvöfaldast og jafnvel þrefaldað stærð sína.
  8. Hitið ofninn í 180°C.
  9. Skiptið deiginu í tvennt, stráið hveiti á borðflöt og hnoðið létt.
  10. Fletjið deigið út með kökukefli.
  11. Smyrjið deigið með pizzasósu, skerið niður skinku og pepperoni og leggið yfir. Sáldrið rifnum mozzarella osti yfir
  12. og kryddið til með oreganó.
  13. Rúllið deiginu saman og skerið hverja rúllu í 18 – 20 bita.
  14. Leggið bitana beint á pappírsklædda ofnplötu eða í bollakökuform eins og ég gerði.
  15. Penslið snúðana með eggjablöndunni og
  16. sáldri rifnum mozzarella osti yfir og kryddið gjarnan með oreganó.
  17. Bakið snúðana við 180°C í 10 – 12 mínútur eða þar til snúðarnir eru gullinbrúnir.
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is/Eva Laufey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert