Salat sem engan svíkur - rucola og bakaðir tómatar

Ofnbakaðir tómatar og rucola svíkur engan.
Ofnbakaðir tómatar og rucola svíkur engan. mbl.is/Valdemarsro

Þetta salat lítur ekki bara vel út því það er líka ómótstæðilega gott. Ofnbakaðir tómatar eru hrein dásemd og eru toppurinn á öllu sem þeir koma nálægt. Það má einnig gæða sér á þessu salati með þurrkuðum ávöxtum, grilluðum ferskjum, eplum eða perum – fer í raun eftir því hvað árstíðirnar eru að gefa okkur hverju sinni.

Salat með rucola og bökuðum tómötum

  • 125 g rucola
  • Handfylli ferskt spínat
  • 200 g litlir sætir tómatar
  • 1 msk. ólífuolía
  • 3 hvítlauksrif, grófsaxað
  • Salt og pipar
  • ½ dl furuhnetur

Dressing:

  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 msk. eplaedik
  • 1 tsk. dijon-sinnep
  • 1 tsk. hunang

Aðferð:

  1. Skerið tómatana til helminga og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
  2. Dreifið söxuðum hvítlauknum yfir, hellið ólífuolíu og saltið og piprið. Það má einnig leggja rósmarín eða tímjangreinar á bökunarplötuna fyrir þá sem vilja auka krydd á tómatana.
  3. Bakið á lágum hita, 100-125° í 1½ til 2 tíma.
  4. Ristið furuhneturnar á þurri pönnu, þar til þær fara að taka lit.
  5. Veltið rucola og spínatinu upp úr dressingunni og setjið á fat. Dreifið því næst tómötunum og hnetunum yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert