Kökur sem sprengja alla skala

Þetta er alvörukaka sem að má borða – ótrúlegt en …
Þetta er alvörukaka sem að má borða – ótrúlegt en satt. mbl.is/Ksenia Penkina

Þetta er eitthvert algjört rugl – við höfum aldrei séð annað eins og eflaust þið ekki heldur. Listamenn eru ekki bara söngdívur eða málarar, þá er líka að finna í kökuskreytingum.

Hún heitir Ksenia Penkina og skreytir kræsingar á við engan annan. Litirnir, formin og aðferðin er hreint út sagt ótrúlegt. Við mælum svo sannarlega með að eyða einni mínútu í að horfa á meistaralega takta í skreytingum sem ná út fyrir þennan heim. Það kemur einhver ánægjutilfinning yfir mann þegar massanum er hellt yfir kræsingarnar.

Sannkallað listaverk!
Sannkallað listaverk! mbl.is/Ksenia Penkina
Formin á þessum eru algjörlega út fyrir okkar sérsvið.
Formin á þessum eru algjörlega út fyrir okkar sérsvið. mbl.is/Ksenia Penkina
Hún heitir Ksenia Penkina og framkallar listrænar syndir eins og …
Hún heitir Ksenia Penkina og framkallar listrænar syndir eins og að drekka vatn. mbl.is/Ksenia Penkina
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert