Forréttur sem slær alltaf í gegn

Rækjuforréttur er alltaf vinsæll á veisluborðið.
Rækjuforréttur er alltaf vinsæll á veisluborðið. mbl.is/Line Thit Klein

Rækjur eru vinsæll forréttur hjá mörgum, enda hægt að útfæra á svo marga vegu. Slíkir réttir slá oftast nær alltaf í gegn. Hér er uppskrift að einum slíkum með heimagerðu dill-majónesi. Upplagður réttur fyrir fjóra og tekur enga stund að framreiða svo lengi sem rækjurnar eru þiðnaðar.

Rækjuforréttur með heimagerðu dill-majó

  • 2 eggjarauður
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. epla- eða hvítvínsedik
  • 2,5 dl sólblómaolía
  • 1 búnt dill
  • 500 g rækjur
  • 8 sneiðar af góðu súrdeigsbrauði
  • Sítróna
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Pískið eggjarauðurnar, salt og edik saman.
  2. Bætið olíunni út í mjög rólega (jafnvel bara nokkra dropa til að byrja með) og hrærið vel í á meðan. Passið að setja olíuna ekki of hratt út í því þá getur majónesið skilið sig – og þá er best að byrja upp á nýtt. Bætið fínt söxuðu dilli út í og smakkið til með salti, pipar og sítrónusafa.
  3. Hreinsið rækjurnar.
  4. Berið fram rækjur á smurðu brauði, jafnvel ristuðu og smurðu með majónesi. Saltið, piprið og kreistið sítrónu yfir rækjurnar (ef vill) og því næst dillmajónes þar ofan á.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert