Settið sem milljarðamæringarnir kaupa sér

mbl.is/Bethan Gray

Það eru eflaust margir sem eru að leita sér að hinu fullkomna tesetti akkúrrat þessa dagana. Það er nefnilega ekki sama úr hverju gott te er drukkið og að sjálfsögðu þykir ekki verra ef það er drukkið úr marmara...

Þetta forláta marmara-tesett kostar rétt tæpar 1,2 milljónir króna og myndi sóma sér vel á hvaða hefðarheimili sem er. Ekki kemur fram hvað hver bolli vegur en fallegir eru þeir.

Hægt er að skoða tesettið (nú, eða panta það) HÉR.

mbl.is/Bethan Gray
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert