Grilluðu saman í tilefni dagsins

Brooklin, Cruz og David Bechkam við grillið sem er ekki …
Brooklin, Cruz og David Bechkam við grillið sem er ekki af verri endanum. mbl.is/Instagram

Það var kátt í Beckham-höllinni þegar David Beckham fagnaði 44 ára afmæli sínu á dögunum. Að sjálfsögðu var boðið upp á góða máltíð og það voru þeir feðgar sem sáu um að grilla eins og þeim einum er lagið.

Það var svo enginn annar en Cruz Beckham, 14 ára sonur Beckham-hjónanna, sem birti þessa mynd á Intagram en þess má geta að hann er með 1,4 milljónir fylgjenda.

Einnig birti hann þessa hugljúfu afmæliskveðju til föður síns og nokkuð ljóst að húmorinn er í góðu lagi á heimilinu.

View this post on Instagram

Happy birthday dad have a amazing day thank you for all you have done for me i love you @davidbeckham ❤️🔥

A post shared by “Cruz Beckham” (@cruzbeckham) on May 1, 2019 at 11:36pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert