Beikonvafin himnasending sem gerir allt betra

Hversu girnilegur nart-biti!
Hversu girnilegur nart-biti! mbl.is/Becky Hardin - The Cookie Rookie

Það er ekkert að fara stoppa okkur í að narta í þessar girnilegu beikonvöfðu rækjur. Þessar bjóða sjálfum sér í matinn og eiga alltaf erindi við matarborðið, sama hvert tilefnið er.

Girnilegar beikonvafðar rækjur

  • 450 g rækjur (um 20 stk.)
  • 7 sneiðar af beikoni
  • 4 msk. saltað smjör
  • ¼ bolli púðursykur
  • ½ msk. chipotle (chipotle chili powder)

Aðferð:

  1. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið hverja beikonsneið í 3 hluta og vefjið einum hluta utan um hverja rækju. Festið með tannstöngli og leggið á bökunarplötuna.
  3. Blandið saman bráðnu smjöri, púðursykri og chipotle. Smyrjið rækjurnar með blöndunni og geymið um ⅓ af blöndunni þar til á eftir.
  4. Bakið í 15 mínútur og takið þá rækjurnar út til að smyrja þær aftur. Setjið ofninn á grillstillingu og bakið rækjurnar áfram í 1-2 mínútur.
  5. Berið fram með því sem hugurinn girnist.
mbl.is/Becky Hardin - The Cookie Rookie
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert