Viltu verða áhrifavaldur og fá yfir milljón í upphafsgreiðslu

Viðkomandi þarf þó að fara varlega í drykkju á rósavíni …
Viðkomandi þarf þó að fara varlega í drykkju á rósavíni enda er það rammáfengt eins og önnur vín. mbl.is/Instagram

Ef svo er þá erum við búin að finna starfið fyrir þig. Þann 8. júní fer af stað leitin að næsta áhrifavaldi fyrir Rose All Day sem er rósavín sem nýtur mikilla vinsælda um heim allan.

Það sem þú þarft að gera til að vera með í keppninni er að fylgja @Rose_All_Day á Instagram og tagga allar þær myndir sem hægt er að tengja við róavín. Því meira því betra. Verið er að leita að fallegum myndum, sterkum persónuleika og snjöllum útfærslum. Að lokum verða fimm áhrifavaldar valdir til að heyja eitt grimmasta rósavíns/áhrifavalda/samfélagsmiðlastjörnu einvígi síðari ára og hreppir sigurvegarinn draumastarfið auk veglegra verðlauna.

Dæmi um afar smekklega og vel útfærða Instagram mynd. Vörumerkið …
Dæmi um afar smekklega og vel útfærða Instagram mynd. Vörumerkið sést vel og umhverfið er fallegt. mbl.is/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert