Will Smith kemur samleikurum sínum á óvart

Stórleikarinn Will Smith er ekki bara með góðan húmor - …
Stórleikarinn Will Smith er ekki bara með góðan húmor - heldur góður í að koma á óvart. mbl.is/etonline.com

Þið sem hafið séð nýjustu Disney-myndina Aladdín vitið að Will Smith leikur þar eitt af aðalhlutverkunum sem andinn Genie. Samstarfsfólk hans hefur lýst yfir hversu góðan húmor og stemningu stórleikarinn færði inn á settið við gerð myndarinnar. En það er ekki það eina sem Will Smith kom með í kvikmyndaverið.

Naomi Scott sem leikur hlutverk Jasmine prinsessu greindi frá því um daginn í viðtali að Will Smith hefði pantað matar-trukk fyrir alla á settinu. Margar mismunandi útgáfur af mac and cheese voru á boðstólnum sem vöktu mikla lukku – enda hver myndi ekki vilja fá óvæntan matarglaðning frá Hr. Smith sjálfum.

mbl.is/Instagram_WillSmith
Will Smith pantaði matar-trukk sem færði öllum samleikurum hans mismunandi …
Will Smith pantaði matar-trukk sem færði öllum samleikurum hans mismunandi týpur af mac´n´cheese. mbl.is/Disney
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert