Orkubomba morgundagsins

Morgunmatur sem setur línurnar fyrir daginn.
Morgunmatur sem setur línurnar fyrir daginn. mbl.is/Spisbedre.dk

Chiafræ eru rík af próteinum, andoxunarefnum og vítamínum – dásamleg í alla staði. Hér bjóðum við upp á orkubombu í formi chia-grauts sem fyllir líkamann af næringu fyrir daginn.

Orkubomba morgundagsins (fyrir 2)

  • 4 msk. chiafræ
  • 2 dl möndlumjólk
  • 115 g frosin hindber
  • 1 msk. agave síróp
  • 1 dl skyr

Smjörristað haframjöl:

  • 125 g tröllahafrar
  • 1 msk. smjör
  • 3 msk. síróp
  • Salt á hnífsoddi

Annað:

  • 4 msk. skyr
  • 10 hindber
  • 6 brómber
  • 2 msk. poppað kínóa

Aðferð:

  1. Hrærið chiafræ saman við möndlumjólkina og setjið í krukku með loki og inn í ísskáp til næsta morguns. Chiafræin draga í sig rakann yfir nóttina.
  2. Blandið köldu chiafræblöndunni saman við frosnu hindberin og sírópið í blandara eða matvinnsluvél. Hrærið því næst skyrinu saman við með skeið.
  3. Ristið haframjölið upp úr smjöri á pönnu við meðalhita í 5 mínútur. Bætið sírópinu saman við og hrærið í sirka 2-3 mínútur, eða þar til haframjölið er orðið gyllt að lit. Dreyfið haframjölinu á bökunarpappír, stráið salti yfir og látið kólna.
  4. Setjið ristað haframjöl í botn á tveim krukkum. Hellið chia-blöndunni yfir og toppið með skyri. Skreytið með berjum og poppuðu kínóa.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert