Borðar ljón og drekkur tekíla fyrir æfingu

Dwayne Johnson eða The Rock.
Dwayne Johnson eða The Rock. skjáskot/Instagram

Við höfum reglulega skrifað um hvað The Rock eða Dwayne Johnson er skemmtilega ruglaður! Hann heldur úti bráðskemmtilegum Instagram-aðgangi sem er með því betra sem sést hefur. Hann er yfirleitt á æfingu eða í ævintýrum með dætrum sínum þar sem þær eru annaðhvort að mála hann, líma á hann dót eða láta hann lita. Þess á milli drekkur hann tekíla. 

Þess má reyndar geta að hann er eigandi Anjeo tekíla og því duglegur að plögga eins og vera ber. Í morgun var hann óvenjuhress (en þó bláedrú (að við teljum)) og ákvað að sýna fylgjendum sínum hvað væri í leikfimistöskunni sinni. Fyrir það fyrsta var litabók með frekar illa litaðri mynd sem hann fullyrti að konan hans hefði litað. Í öðru lagi dró hann upp poka með tíu hráum pylsum sem sem hann sagði að væru pylsur gerðar úr ljónum en það væri leyndarmálið á bak við það hversu góðu formi hann væri í og svo fékk hann sér slurk af tekíla. 

Við mælum eðlilega ekki með þessari for-æfingar máltíð — bara alls ekki og erum nokkuð viss um að ljónapylsur eru ekki til. 

Ljónapylsurnar sem eru nokkuð örugglega venjulegar pylsur.
Ljónapylsurnar sem eru nokkuð örugglega venjulegar pylsur. Ljósmynd/Facebook
Tekíla, sama hversu lítið, er ekki æskilegt fyrir æfingu.
Tekíla, sama hversu lítið, er ekki æskilegt fyrir æfingu. Ljósmynd/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert