Uppáhaldssúpan með bræddum osti

Lauksúpa með brauði og bræddum osti var að lenda á …
Lauksúpa með brauði og bræddum osti var að lenda á borðinu - gjörið svo vel. mbl.is/Goodhousekeeping.com_Mike Garten

Það jafnast fátt við góða súpu. Súpa er eitt það notalegasta sem hægt er að snæða, þá sérstaklega á köldum vetrardögum. Þessi er sérstök og mun koma þér skemmtilega á óvart.

Uppáhaldssúpan með bræddum osti

  • 3 msk. ólífuolía
  • 5 stórir laukar, skornir þunnt
  • flögusalt — við notum Norðursalt
  • 1,5 tsk hveiti
  • ¼ bolli þurrt hvítvín eða koníak
  • 2 lítrar beinaseyði
  • 2 lárviðarlauf
  • 6 timíangreinar, plús aðeins meira til skrauts
  • 1 msk. sérríedik
  • 8 brauðsneiðar af góðu brauði
  • 100 g gruyéreostur, rifinn

Aðferð:

  1. Hitið olíu í stórum potti á meðalhita. Steikið lauk og 1,5 tsk af salti. Lækkið undir og hrærið af og til í lauknum þar til mjúkur í 10 mínútur.
  2. Hækkið aftur á meðalhita og haldið áfram að hræra í lauknum þar til brúnn og karamelliseraður, í 40-50 mínútur. Ef botninn á pottinum verður of dökkur er bætt við 4-5 msk af vatni.
  3. Stráið hveiti yfir laukinn og steikið áfram í 2 mínútur. Bætið hvítvíni eða koníaki saman við og því næst eru beinaseyðið og jurtirnar sett saman við. Látið malla í 15-20 mínútur, hrærið þá edikinu saman við.
  4. Undirbúið brauðið á bökunarplötu og stráið osti yfir ásamt smávegis fersku timían. Ristið í ofni þar til gyllt á lit í 1 mínútu og berið fram ofan á súpunni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert