Einn óvæntasti smellur síðasta árs mættur aftur

Deuki Hong mætti fyrst á Food & Fun í fyrra.
Deuki Hong mætti fyrst á Food & Fun í fyrra.

Deuki mættur aftur á KORE

Ein best heppnaða uppákoman á Food & Fun í fyrra var vafalítið samstarf KORE og Deuki Hong en þeir sem misstu af gleðinni gráta það enn.

Það er þó full ástæða til að taka gleði sína á ný því Deuki er mættur á ný og mun leika listir sínar í eldhúsi KORE alla helgina.

Deuki þykir afar flinkur og hefur oftar en ekki verið kallaður hinn kóresk/ameríski Anthony Bourdain sem er mögulega eitt mesta hrós sem hægt er að fá.

Í dag rekur hann þrjá staði í San Francisco og við hvetjum ykkur til að missa ekki af þessari veislu.

Matseðillinn um helgina....
Matseðillinn um helgina....




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert