Rétturinn sem rífur þig á fætur

Nachos í morgunmat er alls ekki svo slæm hugmynd.
Nachos í morgunmat er alls ekki svo slæm hugmynd. mbl.is/Colourbox

Það þarf ekkert að beita fortölum til að fá okkur til að borða nachos í morgunmat – við erum alltaf til í það. Hér er klassískur nacho- réttur útbúinn sem morgunþruma með hrærðum eggjum. Réttur sem rífur þig á fætur.

Rétturinn sem rífur þig á fætur

  • 6 stór egg
  • ½ msk. canola-olía
  • 150 g nachos-flögur
  • 1 bolli Montery Jack-ostur, rifinn
  • ¼ bolli jalapenjo
  • 1 avókadó, skorinn í þunnar sneiðar
  • 1 bolli ferskt tómatasalsa (tómatar, laukur og kóríander blandað saman)
  • 2 msk. kóríander, saxað
  • sýrður rjómi
  • lime

Aðferð:

  1. Sláið eggin út með ¼ tsk. af salti. Takið fram pönnu sem má fara inn í ofn og hitið olíu á meðalhita. Setjið eggin á pönnuna og hrærið varlega í í 3-4 mínútur. Setjið í skál og til hliðar. Þurrkið það mesta af pönnunni.
  2. Hitið ofninn á grillstillingu. Dreifið helmingnum af nachos-flögunum á pönnuna og helmingnum af ostinum þar yfir. Setjið hinn helminginn af flögunum yfir og restina af ostinum. Því næst koma eggin og jalapenjo. Hitið í ofni þar til osturinn byrjar að bráðna og flögurnar brúnast – í sirka 1-2 mínútur.
  3. Takið úr ofni og toppið með avókadó, kóríander og tómatasalsa.
  4. Berið fram með sýrðum rjóma og lime-skífum ef vill.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert