Steikarsósan sem toppar flest

Ljósmynd/Linda Ben

Ef það er einhvern tímann tilefni til að tríta sig almennilega er það núna. Hér erum við að tala um alvöru rib-eye-steik og hvorki meira né minna en trufflu-bernaise-sósu sem ætti að valda yfirliði hjá einhverjum.

Fyrir þá sem eru ekki alveg með á hreinu hvað trufflu-bernaise er þá erum við að tala um ígildi þess að tvær poppstjörnur eignist barn. Það er nánast gulltryggt að afkvæmi þeirra verður stórbrotið — rétt eins og þegar trufflan hitti bernaise-sósuna og ákvað að bjóða í partý.

Það er meistari Linda Ben sem á heiðurinn að þessari uppskrift og fyrir þá sem vilja sjá aðferðina er hún inn í highlights undir „steik og franskar“ inn á Instagraminu hennar.

Steik og franskar með trufflu-bernaise-sósu

  • 2 x 250 g Danish Crown Rib-eye-steikur
  • Cavendish franskar Restaurant style
  • Salt og pipar
  • Trufflu-bernaise-sósa

Trufflu-bernaise-sósa

  • 4 eggjarauður
  • 400 g brætt smjör
  • 2-3 tsk. bearnaise-essens (magn eftir smekk)
  • ½ tsk. truffle olía (fæst í flestum betri stórmörkuðum)
  • u.þ.b. 2 tsk. estragon (magn eftir smekk)
  • Pipar (magn eftir smekk)
  • Salt með trufflum (til dæmis Lie Gourmet sem fæst hér)

Aðferð

  1. Brjótið eggin og aðskiljið eggjahvítu og eggjarauður.
  2. Bræðið smjörið á vægum hita.
  3. Þeytið eggjarauðurnar varlega í nokkra stund í hrærivél/rafmagnsþeytara þar til þær eru orðnar léttar, ljósar og mynda borða. (takið þeytarann upp reglulega og teiknið 8 snögglega með því sem lekur af þeytaranum ofan í skálinni. Ef það tekst að teikna áttu og hún sést greinilega í örfáar sek. eru eggjarauðurnar tilbúnar).
  4. Hellið smjörinu út í eggjarauðurnar í lítilli bunu með þeytarann rólega í gangi.
  5. Setjið bearnaise-essens út í sósuna og hrærið saman, bætið því næst estragon út í og hrærið saman.
  6. Bætið truffluolíu út í og hrærið saman.
  7. Saltið og piprið sósuna eftir smekk. Gott að byrja á litlum skammti og auka svo eftir smekk.

Steikur

  1. Takið steikurnar út úr kæli a.m.k. 2 klst. fyrir eldun.
  2. Kveikið á grillinu og leyfið því að hitna vel.
  3. Kveikið á ofninum, stillið á 230°C og undir+yfir hita.
  4. Piprið steikurnar vel á báðum hliðum, magn eftir smekk.
  5. Því næst er sósan útbúin (uppskrift hér fyrir neðan)
  6. Grillið hverja steik á báðum hliðum, þar til kjarnhiti nær 57ºC (tími fer eftir hita á grillinu en þumalputtareglan er 4-6 mín. á hvorri hlið í heildina). Mikilvægt er að fylgjast vel með kjötinu, snúa reglulega, passa að sjálfsögðu að það brenni ekki. Eftir að steikurnar koma af grillinu, leyfið þeim að standa í 10 mín. við stofuhita, gott að setja álpappír yfir til að halda þeim heitum.
  7. Setjið frönskurnar inn í ofn og bakið í 10 mín. eða þar til þær eru orðnar fallega gullin brúnar, stökkar að utan en mjúkar að innan.
  8. Saltið steikurnar og frönskurnar eftir smekk og berið fram með bernaise-sósunni.

Nákvæmt aðferðarmyndband er að finna á Instagram.com/lindaben í „steik og franskar” highlights.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl.

Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka