Nýtt súkkulaði frá Omnom

Ljósmynd/Omnom

Súkkulaðiséníin í Omnom eru komin með nýtt súkkulaði á markað sem heitir hvorki meira né minna en SuperChocoBerryBarleyNibblyNuttylicious (reyndu að segja þetta hratt 10 sinnum).

Súkkulaðið er skilgreint sem ofurfæða enda inniheldur það möndlur, bygg, trönuber, kakónibbur og silkimjúkt 70% dökkt súkkulaði búið til úr lífrænum kakóbaunum frá Tansaníu. Hver einasti munnbiti er sagður veita orku og ómælda gleði hvort sem viðkomandi er á leiðinni upp á fjall, í lautarferð, útilegu, í kósí út á svölum eða hreinlega í sófann yfir Netflix.

„Í nokkrar vikur stóð heimurinn í stað og þegar fólk stendur frammi fyrir nýjum og breyttum aðstæðum fæðast gjarnan nýjar hugmyndir. Við þurftum, eins og allir aðrir, að loka súkkulaðigerðinni okkar um tíma en þar hef ég varið öllum mínum stundum undanfarin sjö ár. Ég ákvað að kíkja í tilraunaeldhúsið og fór þar að leika mér að hráefnum sem við áttum til nú þegar og úr varð nýtt súkkulaði,“ segir Kjartan Gíslason, annar stofnandi Omnom og súkkulaðigerðarmaður, um tilurð nýja súkkulaðisins.

„Ég elska dökkt súkkulaði, sérstaklega úr kakóbaunum frá Tansaníu, og byrjaði því á að búa til grunn úr þeim baunum. Þær eru svo skemmtilega bragðgóðar, gefa náttúrulega sætu og finna má bragðtóna í átt að steinávöxtum og bönunum. Ég vildi gefa súkkulaðinu aukakikk með því að strá yfir það stökkum möndlum sem búið er að velta upp úr saltvatni. Því næst bætti ég við poppuðu byggi frá Vallanesi, en fannst það einhvern veginn ekki nóg. Til að fá extra stökkleika bætti ég kakónibbum við og til að fullkomna blönduna bætti ég trönuberjum ofan á súkkulaðið en þau gefa mýkt og sæta beiskju. Ég vona að þið njótið Super Choco-súkkulaðisins okkar jafn vel og ég á ferð ykkar um landið í sumar.“

Ljósmynd/Omnom
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert