Nói Síríus opnar sýningu á Árbæjarsafni

Ljósmynd/Nói Síríus

Í tilefni 100 ára afmælis Nóa Síríus verður í dag opnuð sýning á Árbæjarsafni sem ber nafnið Öldin hans Nóa: afmælissýning Nóa Síríus, segir sögu einna elstu sælgætisgerðar Reykjavíkur. Í ár eru hundrað ár frá því að Brjóstsykursgerðin Nói sendi frá sér fyrstu lögunina af sínu landsfræga sælgæti. Síðan þá hafa ófáar karamellur verið tuggðar, allskyns dýrindis konfektmolar smakkaðir — að ekki sé talað um Opalið, súkkulaðið, brjóstsykurinn, páskaeggin og allt hitt ómótstæðilega góðgætið.

Saga Nóa Síríus fléttast sögu íslensku þjóðarinnar á skemmtilegan hátt þar sem fyrirtækið hefur átt hlut í veisluborðum og hátíðisdögum landsmanna síðan snemma á 20. öldinni. Á sýningunni verður sögu Nóa og Síríus, sem eitt sinn voru tvö aðskilin fyrirtæki með framleiðslu undir sama þaki í verksmiðjuhúsi á Barónstíg, gerð góð skil. Sælgætið frá Nóa Síríus gleður bæði auga og bragðlauka og því munu gamlar umbúðir og auglýsingar fá að njóta sín sem ættu að kæta unga sem aldna! Að auki má finna á sýningunni musteri hins bláa Opals þar sem gestum verður gert kleift að undirrita áskorun til stjórnvalda um að leyfa framleiðslu á einni framleiðslu í viðbót.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert