Tígrisrækjur í krönsi með dill sósu

Girnilegar tígrisrækjur í krönsi með geggjaðri sósu.
Girnilegar tígrisrækjur í krönsi með geggjaðri sósu. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Fullkominn forréttur eða léttur réttur yfir hátíðarnar – hvort sem er, þá eru þessar tígrisrækjur í krönsi að smakkast ólýsanlega vel. Rétturinn kemur úr smiðju Hildar Rutar sem lofar uppskriftinni vel og vandlega.

Tígrisrækjur í krönsi með avókadó dill sósu

  • 600 g stórar tígrisrækjur frá Sælkerafiski
  • 8 dl Eat real hummus snakk með dilli
  • Ólífuolía/Pam sprey
  • Salt & pipar
  • 2 egg
  • 1 dl spelt

Sósa

  • 2 avókadó
  • 2 msk. sýrður rjómi
  • Safi úr 1 lime
  • 2 msk. ferskt dill
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Setjið snakkið í poka og rúllið yfir með kökukefli svo það verði að mulningi.
  2. Veltið tígrisrækjunum upp úr ólífuolíu og kryddið með salti og pipar. Næst veltið þeim upp úr speltinu, egginu og að lokum snakkinu. Mér finnst gott að nota tangir.
  3. Dreifið rækjunum í eldfast form þöktu bökunarpappír og spreyið þær með Pam spreyi eða dreifið ólífuolíu yfir þær.
  4. Bakið í ca 5-6 mínútur við 200°C eða þar til þær eru orðnar stökkar að utan.
  5. Á meðan rækjurnar bakast þá útbúið þið sósuna. Blandið saman avókadó, sýrðum rjóma, safa úr lime, dilli, salti og pipar með töfrasprota. En það er einnig hægt að stappa saman avókadó, saxa dill smátt og hræra saman við hin hráefnin.
  6. Stráið fersku dilli yfir rækjurnar og berið fram með sósunni. Njótið!
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert