Finn Crisp-hrökkbrauð innkallað

Hrökkbrauðið sem um ræðir.
Hrökkbrauðið sem um ræðir. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirtækið ÍSAM hefur að höfðu samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum hrökkbrauðið Finn Crisp Sesame & Fibre Round Crispbread.

Ástæðan er sú að varnarefnið etýlenoxíð greindist í vörunni en það er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu. Neysla á matvælum sem innihalda etýlenoxíð getur til langs tíma verið heilsuspillandi, segir í tilkynningu.

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Finn Crisp

Vöruheiti: Sesame & Fibre Round Crispbread   

Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar frá 24.1.2021 til og með 3.9.2021

Strikamerki: 6410500097099

Nettómagn: 250 g

Geymsluskilyrði: Á ekki við

Framleiðandi: Lantmånnen Cerealia

Framleiðsluland: Finnland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert