MK-nemi í alþjóðlegri matreiðslukeppni

Mánudaginn 1. febrúar mun matreiðsluneminn Róbert Zdravkov Demirev taka þátt í Ólympíukeppni ungra matreiðslumanna. Þessi keppni hefur verið haldin á Indlandi frá árinu 2015 og hafa keppendur frá Hótel- og matvælaskólanum í MK tvívegis áður tekið þátt í henni, þ.e. 2018 og 2020.

Keppnin í ár er þó með öðru sniði en áður þar sem skipuleggjendur tóku þá djörfu ákvörðun að láta ekki alheimsfaraldur stoppa sig heldur halda keppnina á netinu. Alls eru skráðir til leiks þátttakendur frá 60 löndum og í alþjóðlegu dómarateymi eru 23 matreiðslumeistarar. Hvert þátttökuland má aðeins senda frá sér einn keppanda. Í fyrstu umferð fá keppendur tvær og hálfa klukkustund til að hluta í sundur og matreiða kjúkling og búa til eftirrétt og grænmetisrétt. Vinna við keppnisverkefnið fer fram í kennslueldhúsi Hótel- og matvælaskólans í beinu streymi á vef ólympíukeppninnar. Lokaútkoman og vinnubrögð eru síðan metin af alþjóðlegu dómarateymi en þrír íslenskir fagmenn munu veita umsögn um bragð og áferð.

Skilyrði fyrir þátttöku í keppninni er að viðkomandi sé enn í námi og á aldursbilinu 18-24 ára. Vegna aðstæðna hafa skólarnir heimild til að tilnefna tvo varamenn ef skyndileg veikindi kynnu að koma upp og urðu nemarnir Dagur Hrafn Rúnarsson og Guðgeir Ingi Steindórsson fyrir valinu. Þeir hafa tekið þátt í öllu undirbúnings- og æfingaferlinu og unnið sem einn maður með Róberti. Að sögn Ægis Friðrikssonar matreiðslukennara, sem hefur séð um þjálfun nemanna, hafa þeir allir sýnt mikinn metnað við undirbúning og stefna langt í faginu.

Róbert mun keppa í undanrásum mánudaginn 1. febrúar kl. 14:00 að okkar tíma. Hinn 3. febrúar mun hann kynna matreiðslu á þjóðlegum rétti og sitja fyrir svörum og ef heppnin er með honum, þá verður keppt til úrslita föstudaginn 5. febrúar. Því miður er ekki hægt að fylgjast með keppninni á netinu en úrslit liggja fyrir í lok hvers keppnisdags.

Myndin með þessari frétt er tekin af kynningarsíðu keppninnar en allar nánari upplýsingar má nálgast á vefnum: Ycolympiad

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert