Guðrún Ýr, sem heldur úti matarblogginu Döðlum & smjöri, á heiðurinn af þessari snilld sem eflaust margir eiga eftir að baka í dag. Sítrónuformkaka minnir okkur á eitthvað gamalt, gott og ákaflega yndislegt.
Sjálf segir Guðrún að kakan sé ótrúlega ljúffeng og þétt í sér. „Ég fékk einhverja óstjórnlega löngun í sítrónuköku um daginn, þá var ekkert annað en að skella í eina formköku og gúffa í sig tveimur sneiðum. Kakan er ótrúlega ljúffeng og þétt í sér.“
Stillið ofn á 175°C. Þeytið saman smjör og sykur í 2-3 mín, bætið eggjunum saman við einu í einu. Blandið saman við sýrðum rjóma, sítrónusafa og sítrónuberki og hrærið létt saman við. Þá er hveiti, matarsóda og salti bætt út í og hrært saman.
Setjið í formkökuform eða form sem ykkur langar að nota. Gott er að klæða það að innan með bökunarpappír eða notast við Pam-olíusprey. Setjið inn í ofn og bakið í 40-45 mín eða þangað til að prjónn/hnífur kemur hreinn upp úr þegar stungið er í kökuna.
Leyfið kökunni að kólna lítillega áður en glassúrinn er settur á.
Blandið öllum hráefnunum saman í skál og hrærið saman. Hægt er að sleppa eggjahvítunni og nota eingöngu sítrónusafa en eggjahvítan gerir glassúrinn stífan, hvítan og fallegan.
Dreifið glassúrnum yfir kökuna og berið fram.