Ítalskir dagar í Sælkerabúðinni

mbl.is/Sælkerabúðin

Við leggjum ekki meira á ykkur gott fólk, en það eru ítalskir dagar í einni helstu gourmet-verslun bæjarins – Sælkerabúðinni.

Meistarakokkarnir í Sælkerabúðinni hefja þetta sumar með stæl og bjóða upp á ítalska daga með öllu því sem matarástin elskar. Úrval af ítölskum forréttum  t.d. burrata, carpaccio og antipasti-forréttaplatta, þar sem bragðlaukarnir verða alls ekki fyrir vonbrigðum. Verslunin býður einnig upp á gott úrval af skinkum og kjötskurði, eins ítalska osta á borð við gorgonzola, parmesan, port salut, kolibrie-geitaost o.fl. Ekki má gleyma pastanu, góðri ólífuolíu og tiramisu ásamt súkkulaðimús með hindberjum sem er ómissandi á ítölsku veisluborði.

Viktor Örn Andrésson, einn af eigendum Sælkerabúðarinnar, segir ítalska matargerð vera í miklu uppáhaldi hjá þeim í versluninni og að þeir hlakki til að taka á móti viðskiptavinum og leiðbeina við val á góðri veislu. Í kjötborðinu má einnig finna kálfa-ribeye, kálfa-milanese, Florentine T-bone-steik og margt fleira. Ítalskir dagar standa fram til 1. maí nk. í Sælkerabúðinni á Bitruhálsi 2, og opið er frá 11-19 alla dagana.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ítalskir dagar standa yfir í Sælkerabúðinni - og úrvalið er …
Ítalskir dagar standa yfir í Sælkerabúðinni - og úrvalið er vægast sagt girnilegt. Viktor og Hinrik standa vaktina og taka vel á móti ykkur. mbl.is/Sælkerabúðin
Kjöt, pasta, ostar og annan sælkeramat má finna í versluninni.
Kjöt, pasta, ostar og annan sælkeramat má finna í versluninni. mbl.is/Sælkerabúðin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert