Í töluverðan tíma höfum við heyrt talað um fyrirbæri að nafni pita-chips eða pítusnakk án þess að hafa hugmynd um við hvað er átt. Nú erum við lokisins búin að komast að því enda ekki seinna vænna því annar hver saumaklúbbur á landinu er að missa sig yfir þessu góðgæti sem er hér útbúið af Berglindi Hreiðars á gotteri.is. Hún býr jafnframt til hummus sem á ættir að rekja til veitingastaðarins Mandí.
„Það er ofureinfalt að skella í hummus. Það fer bara allt í blandarann og búmm, tilbúið til skreytingar! „Pita Chips“ eða pítuflögur eru síðan mjög góðar með hummus. Með því að taka í sundur pítubrauð, pensla með olíu, skera í þríhyrninga og baka í ofni eruð þið komin með stökkar og geggjaðar slíkar flögur!"
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Heimagerður jalapeño-hummus og „pita-chips“
Pítuflögur
- 1 pakki Hatting-pítubrauð (6 stk)
- 150 virgin ólífuolía
- 1 tsk. salt
- 1 tsk. hvítlauksduft
- 1 tsk. paprikuduft
- ½ tsk. pipar
- ½ tsk. sumac-krydd
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Takið brauðin í sundur svo úr verði tvær þynnri sneiðar.
- Pískið ólífuolíu og krydd saman í skál.
- Penslið báðar hliðar á brauðinu með vel af olíu.
- Skerið síðan hvert brauð í átta hluta (eins og pizzu), raðið í ofnskúffu (það þarf tvær skúffur) og bakið í 10-18 mínútur.
- Brauðin eru misþykk svo gott er að taka skúffuna út eftir 10 mínútur og taka þær flögur sem eru orðnar stökkar úr ofninum en setja svo restina aðeins inn aftur.
- Leyfið flögunum að kólna alveg á grind áður en þið njótið þeirra.
Jalapeño-hummus
- 2 dósir kjúklingabaunir (2 x 400 g)
- 80 ml safi af kjúklingabaununum
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 x jalapeño
- 1 lúka af kóríander
- 40 ml virgin ólífuolía
- 2 msk. tahini
- ½ sítróna (safinn)
- 1 límóna (safinn)
- 1 tsk. salt
- paprikuduft, olía, pipar, srirachasósa og nokkrar kjúklingabaunir til skrauts.
- Skerið hvítlaukinn gróft, fræhreinsið jalapeñoið og skerið það einnig gróft niður.
- Setjið síðan allt saman í blandarann (geymið nokkrar kjúklingabaunir til skrauts) og blandið þar til hummusmauk hefur myndast. Það þarf aðeins að skafa niður á milli til að ná mjúkri áferð.
- Setjið í fallega skál og skreytið með smá olíu, baunum, srirachasósu og kryddi.
- Njótið með nýbökuðum flögum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir