Brúðarterta Gwen Stefani var stórbrotin

Stjörnuparið Gwen Stefani og Blake Shelton, giftu sig nú á …
Stjörnuparið Gwen Stefani og Blake Shelton, giftu sig nú á dögunum og kakan var með glæsilegasta móti. Mbl.is/JEREMY BUSTOS

Þegar tónlistarfólkið Gwen Stefani og Blake Shelton gengu í hjónaband um síðustu helgi passaði brúðurin upp á að heiðra foreldra sína á stóra deginum með brúðartertunni.

Kakan var gerð af Fancy Cakes By Lauren, sem deildi myndum af henni á instagramsíðunni sinni  enda er kakan eitt stórt meistaraverk. Þar segir Lauren að þetta hafi ekki verið nein venjuleg kaka, því hún var gerð fyrir tvær stórstjörnur. Og þar fyrir utan vildi Gwen endurskapa brúðartertu foreldra sinna, sem voru að sjálfsögðu á staðnum þegar Gwen og Blake játuðu ást sína fyrir framan Guð og menn.

Þessi einstaki kökustíll er kallaður „Lambeth Cake Design“ og hefur dálítið týnst í kökuskreytingarflórunni í gegnum árin þar sem mikið af smáatriðum felst í hverjum sentimetra eins og í þessari tilteknu köku sem er heilar fimm hæðir – fagurlega skreytt með súlum, bjöllum og sykurblómum svo eitthvað sé nefnt. Og við teljum það nokkuð öruggt að þessi tiltekna kaka sé að fara að skjóta „Lambeth“-stílnum aftur á kortið.

Kakan var nákvæm eftirmynd af brúðartertu foreldra Gwen.
Kakan var nákvæm eftirmynd af brúðartertu foreldra Gwen. Mbl.is/ Instagram_Fancy Cakes By Lauren
Margir litlir díteilar skreyta kökuna.
Margir litlir díteilar skreyta kökuna. Mbl.is/ Instagram_Fancy Cakes By Lauren
Mbl.is/ Instagram_Fancy Cakes By Lauren
Mbl.is/ Instagram_Fancy Cakes By Lauren
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert