Grillaður fiskréttur með Dala-salatosti

„Þessi einfaldi en ljúffengi réttur hefur verið vinsæll í fjölskyldunni í mörg ár og eldaður jafnt sumar sem vetur. Best finnst mér að grilla hann en ef ekkert er grillið má vel stinga honum í ofn. Einstaklega fljótlegur og gríðarlega gómsætur,“ segir höfundur uppskriftar, Helena Gunnarsdóttir, um þessa uppskrift sem verður áreiðanlega elduð á mörgum heimilum í kvöld. 

Grillaður fiskréttur með Dala-salatosti

Fyrir fjóra
  • 850 g fiskur, t.d. þorskur
  • 2 stk. laukur
  • 1 poki spínat
  • 11⁄2 askja kirsuberjatómatar
  • 1 sítróna, skorin í sneiðar
  • 1 krukka Dala-salatostur í kryddolíu
  • sítrónupipar

Aðferð:

  1. Skerið fiskinn í bita, laukinn í þunnar sneiðar og kirsuberjatómatana í tvennt.
  2. Setjið 2 msk. af kryddolíunni af salatostinum neðst í fat eða á álbakka sem má fara á grill, dreifið úr lauknum og setjið svo spínatið yfir.
  3. Leggið fiskinn í bitum yfir spínatið og kryddið vel yfir allt með sítrónupipar.
  4. Dreifið tómötunum í kringum fiskbitana, leggið eina sítrónusneið ofan á hvern fiskbita og hellið að lokum úr allri Dala-salatostakrukkunni yfir allt saman.
  5. Kryddið aðeins yfir aftur með sítrónupipar.
  6. Eldið á meðalheitu grilli (180-200 gráður) í 12-15 mínútur með lokið á, eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert