Lakkrískóngur í samstarf við djúsrisa

Johan Bülow
Johan Bülow

Okkar ástsæli og ókrýndi lakkrískóngur, Johan Bülow – parar sig saman við Joe & The Juice með bragðgóðri nýjung er kallast „Power Shake“.

Hér er bragðgóði lakkrísinn að taka höndum saman við einn vinsælasta drykk Joe & The Juice, þar sem sætan af vanillu, bönunum og ferskum jarðarberjum verður að gúrme útgáfu – húðuð með hvítu súkkulaðii og stökku hýði. Á umbúðunum er sérstakur QR-kóði þar sem lakkrísframleiðandinn biður neytendur að gefa lakkrísinum einkunn og ákvarða þannig framtíð lakkrísins. Power Shake er þó eingöngu fáanlegur á netinu í takmörkuðu upplagi, sem og í verslunum Lakrids By Bülow.

Nýr lakkrís frá Johan Bülow.
Nýr lakkrís frá Johan Bülow. mbl.is/Johan Bulow
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert