Veitingastaður á besta stað til leigu

Þau stórtíðindi berast að hið fornfræga veitingarými sem áður hýsti Humarhúsið sé nú til leigu. Veitingastaðurinn stendur við Amtmannsstíg 1 á Bernhöftstorfunni. Húsið er 390 fermetrar að stæðr og þar af er 75 fermetra turnhús.

Rýmið fyrir framan húsið er einstaklega fallegt og vel staðsett og því ljóst að möguleiki er á góðu útisvæði. Um er að ræða einstaklega spennandi kost fyrir áhugasama enda veitingaflóran í miðborgini einstaklega lífleg um þessar mundir og von á góðu sumri.

Áhugasamir geta sett sig í samband við FÍ fasteignafélag (fifasteignir@fifasteignir.is)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert