Tíramisú morgungrauturinn sem vekur þig

Ljósmynd/Helga Magga

Hljómar ekki vel að fá sér tíramisú í morgunmat? Hér er grautur sem kaffiunnendur mega ekki láta framhjá sér fara. Og það besta er að, þennan má auðveldlega útbúa kvöldinu áður að sögn Helgu Möggu sem á heiðurinn að uppskrfitinni.

Tíramisú morgungrauturinn sem vekur þig

  • 40 g haframjöl
  • 5 g chia fræ
  • 5 g kakó duft
  • Smá salt
  • 25 g vanillu próteinduft
  • 1 lítill sterkur kaffibolli 30 ml
  • 75 ml fjörmjólk
  • 130 g Ísey vanilluskyr

Aðferð:

  1. Þú byrjar á að setja saman í skál haframjöl, chia fræ, kakó, salt og próteinduft. Blandar svo saman við þetta kaffinu og fjörmjólkinni og lætur blönduna bíða í ísskáp yfir nótt. Ef þú ert að gera grautinn samdægurs er sniðugt að minnka örlítið mjólkina svo grauturinn verði þykkari, blandar þá saman í skál og lætur bíða í um 15 mínútur.  
  2. Þú raðar svo lögum af hafragrautnum og vanilluskyrinu á víxl og setur smá kakó efst.
  3. Mér finnst þægilegt að nota instant kaffiduft til að búa til kaffibollann.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert